Öryggi
Hannað til að vernda
Með 5-stjörnu Euro NCAP öryggiseinkunn, byggir Polestar 2 á áratuga rannsóknum í byltingarkenndu öryggi og sameiginlegri verkfræðiþekkingu með Volvo Cars. Hann er búinn nýjustu verndandi og fyrirbyggjandi tækni, tilbúinn til að grípa inn í þegar þörf krefur.
Ratsjár, myndavélar og skynjarar
Polestar 2 notar þrjár ratsjáreiningar, fimm myndavélar og tólf ómsjáarskynjara til að fylgjast með umhverfi sínu. Tölva bílsins fyrir virka öryggisstjórnun vinnur úr inntaki þeirra til að flokka mismunandi vegfarendur og umferðaraðstæður og hjálpa til við að koma í veg fyrir árekstra.
SmartZone
Þar sem Polestar 2 þarf ekki grill til að anda, hefur því verið skipt út með SmartZone, sem hýsir myndavél og öfluga, hitaða ratsjá. Með þeim getur bíllinn greint aðra vegfarendur og aðstæður sem eru hugsanlega hættulegar, og aðstoðað ökumanninn í öllum veðurskilyrðum og skyggni.
Blindpunktsaðvörun (Blind Spot Information System)
Blindpunktsaðvörun (Blind Spot Information System) (BLIS) greinir ökutæki sem ætla að fara fram úr og blikkar viðvörunarljósi í rammalausu speglunum. Ef ökumaðurinn heldur áfram að skipta um akrein beinir stýrisstuðningurinn Polestar 2 aftur í akreinina sem hann var í.
Akreinavari
Útafakstursvörn
Minni hætta á að farið sé út af veginum. Ef Polestar 2 leitar fyrir slysni í átt að vegöxlinni hjálpar útafakstursvörnin (Run-off Road Mitigation) til við að stýra bílnum tilbaka þegar ekið er á hraða á bilinu frá 65 til 140 km/klst.. Í því tilviki sem bíllinn fer út af yfirborði vegarins beitir kerfið hemlunum til að lágmarka áhrif hugsanlegs árekstur. Ökumaðurinn getur yfirtekið stýrisstuðninginn hvenær sem er.
Akreinavari
Veglínuskynjari
Á hraðabilinu frá 65 til 200 km/klst. er veglínuskynjarinn (Lane Keeping Aid) virkur og leiðréttir stefnu bílsins ef hann er nálægt því að fara yfir veglínu án þessa að stefnuljós hafi verið gefið. Ef inngrip á stýri leiðréttir stefnuna ekki nægilega mikið heyrist einnig hljóðviðvörun. Hægt er að kveikja og slökkva á kerfinu á miðjuskjánum.
Akreinavari
Vörn gegn akstri yfir á akrein fyrir umferð úr gagnstæðri átt
Ef Polestar 2 fer yfir veglínu og stefnir í veg fyrir ökutæki sem kemur úr gagnstæðri átt, án þess að ökumaðurinn sýni nein viðbrögð, þá gefur kerfið fyrir vörn gegn akstri yfir á akrein fyrir umferð úr gagnstæðri átt (Oncoming Lane Mitigation) frá sér viðvörun með mynd og hljóði, og hjálpar til við að stýra bílnum tilbaka. Þetta kerfi virkar á hraðabilinu frá 60 til 140 km/klst. og ökumaðurinn getur alltaf gert það óvirkt.
Bílastæðaskynjarar og aðstoð
Gerðu þrönga staði auðvelda. Polestar 2 notar myndavélar og skynjara sína til að hjálpa til við að gera auðveldara að fara um þröng stræti, horn og bílastæði og öruggara fyrir þá sem eru innan í og utan við bílinn.
Bílastæðahjálp
Umferðarskynjari að aftan (Cross Traffic Alert) með sjálfvirkri hemlun
Þegar bakkað er út úr innkeyrslu, bílastæði eða fyrir horn, þá varar umferðarskynjari að aftan (Cross Traffic Alert) við bílum, hjólreiðamönnum og gangandi vegfarendum sem koma inn á svæðið. Ef ökumaðurinn heldur áfram að bakka þá beitir Polestar 2 hemlunum sjálfkrafa.
Bílastæðahjálp
360° og baksýnismyndavélar
Við tilfærslur sýnir Polestar 2 umhverfi sitt úr lofti á miðjuskjánum. Fjórar myndavélar veita 360° útsýni, miðað við sýndarmynd af bílnum til að aðstoða ökumanninn við að fara um þröng rými.
Bílastæðahjálp
Bílastæðahjálp
Polestar 2 kemur með bílastæðahjálp (Park Assist) sem staðalbúnað, sem mælir fjarlægð frá hindrunum að framan, aftan og frá hliðum bílsins. Kerfið leiðbeinir með mynd og hljóði þegar tilfærslur eiga sér stað í þröngu rými.
Adaptive Cruise Control
Myndavélar og ratsjár vakta umhverfi Polestar 2 og hjálpa bílnum að viðhalda öruggri stöðu á veginum. Adaptive Cruise Control aðlagar hraðann að hraða og fjarlægð ökutækisins fyrir framan, á meðan Pilot Assist gerir varfærnar breytingar á stýringu til að halda Polestar 2 á miðri akrein. Hraðastilling og aðlaganlegur hraðatakmarkari eru innifalin sem staðalbúnaður.
Adaptive Cruise Control er fáanlegt með Pilot pakkanum.
Driver Alert Control
Polestar 2 hjálpar ökumanninum að halda sér einbeittum. Driver Alert Control notar myndavél til að rekja leið bílsins miðað við akreinamerkingar og virkjar hljóð- og myndrænar viðvaranir ef það greinir merki um syfju eða truflun hjá ökumanninum.
Viðvörunarkerfi
Aftanákeyrsluvari
Aftanákeyrsluvarinn athugar hvort það sé ökutæki fyrir aftan Polestar 2 og reiknar út hættuna á árekstri. Ef bíll kemur of nálægt blikka öll viðvörunarljós hratt. Ef kerfið skynjar að slys sé yfirvofandi þá strekkir það öryggisbeltin og beitir hemlunum.
Viðvörunarkerfi
Upplýsingar um umferðarskilti
Bíll sem þekkir skiltin. Upplýsingarkerfið fyrir umferðarskilti greinir og s ýnir hraðatakmörk og önnur umferðarskilti á ökumannsskjánum. Það varar ökumanninn einnig við ef farið er yfir hraðatakmörk eða ef það eru hraðamyndavélar nálægt.
Snjöll lýsing
Polestar 2 notar myndavélaskynjaratækni til að aðlaga aðalljósin að umhverfi bílsins, sem veitir bestu mögulegu lýsingu á meðan fyrirhöfn ökumanns verður minni.
Pixel LED-aðalljós með aðlaganlegum hágeisla
Stjórnað af myndavél uppsettri að framan, er kveikt og slökkt á Pixel LED-ljósunum 84 í hvoru aðalljósi fyrir sig til að aðlaga geislann að lýsingu og umferðarskilyrðum. Þau geta skyggt út allt að fimm svæði fyrir framan bílinn og aukið þannig útsýnið án þess að blinda aðra ökumenn.
Fáanlegt með Pilot pakkanum.
Virk háljós
Lýstu án þess að blinda. Polestar 2 kemur með virka háljósatækni sem staðalbúnað, sem skynjar aðalljós ökutækja sem nálgast úr gagnstæðri átt, eða afturljós bíla sem eru beint fyrir framan. Þegar þetta á sér stað skipta aðalljósin sjálfkrafa úr hágeisla í lággeisla.
Rafhlöðuöryggi
Rafhlöðupakki Polestar 2 er innan í stál- og álramma til að minnka hættuna á skemmdum í tilviki áreksturs. Verndarhlíf báðum megin gegn hörðum árekstrum að framan (SPOC), minnkar líkurnar á því að hlutir stefni á rafhlöðuna ef framendi bílsins verður fyrir höggi sem kemur ekki beint framan á.
Rafræn rafhlöðuvernd
Ef Polestar 2 greinir að bíllinn hafi lent í árekstri grípur háþróuð öryggistækni hans umsvifalaust til aðgerða. Háspennukerfi rafhlöðupakkans er sjálfkrafa aftengt frá öðrum hlutum bílsins, sem dregur verulega úr hættu á skemmdum á rafrásum.
Vernd eftir árekstur
Farþegarými Polestar 2 er byggt úr ofursterku stáli til að verja farþega við árekstraraðstæður. Í tilfelli áreksturs virkja skynjarar loftpúða að framan, hliðarloftpúða og innri hliðarloftpúða, sem veita einstaklingsbundna vernd og draga úr hættunni á meiðslum ökumanns og farþega að framan.
Samsetningaröryggi
Öryggisbúrið úr stáli og áli veitir farþegum hámarksvernd við árekstur. Neðri kraftlínan að framan er hönnuð til að draga í sig orkuna við framanákeyrslu, sem dregur úr hættu á líkamstjóni hjá farþegum og aflögun rafhlöðupakkans.
Bein aðstoð
Toppstjórnborðið inniheldur tvo hnappa fyrir beina hringingu í tilviki bilunar eða slyss. Connect-hnappurinn er notaður til að ná í Polestar aðstoð vegna atburða eins og tómrar rafhlöðu eða sprungins dekks. SOS-hnappurinn er ætlaður fyrir neyðartilvik eins og slys. Í tilviki alvarlegs slyss hringir Polestar 2 sjálfkrafa á hjálp.